Vegurinn heim
Vegurinn heim er hjartnæm íslensk heimildarmynd, byggð á viðtölum við fimm börn innflytjenda á Íslandi. Í henni ræða börnin líf sitt og tilveru hér á landi og lýsa upplifun sinni af því að vera á mörkum ólíkra menningarheima. Myndinni fylgja aðgengilegar kennsluleiðbeiningar. Þar eru fjölbreyttar og áhugaverðar hugmyndir að umfjöllun um efni myndarinnar með nemendum á öllum aldursbilum grunnskóla. Efnið er þarft innlegg í kennslu og umræðu um fjölmenningu hér á landi.
Kennsluleiðbeiningar fylgja á vef Námsgagnastofnunar.
Mynd þessi er eingöngu fáanleg til niðurhals af vefnum. Notaðu tengilinn til hægri.
- Námsgreinar: Lífsleikni Samfélagsgreinar Þjóðfélagsfræði
- Aldursstig: Yngsta stig, Miðstig, Unglingastig
- Útgáfuár: 2010
- Höfundur: Jón Gunnar Ólafsson og Oddný Helgadóttir
- Efnisorð: Mannréttindi, Samskipti, Siðfræði
- Ókeypis niðurhlað: Vegurinn heim
Vegurinn heim kynning
Vegurinn heim fjölskyldan
Vegurinn heim koman til Íslands
Vegurinn heim Vinirnir
Vegurinn heim skólinn
Vegurinn heim hitt landið



