Sagnorðaspilið, mál- og talörvunarefni
Sagnorðaspilið er einkum ætlað börnum með sértæka málþroskaröskun en hentar einnig börnum með seinan málþroska og nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku.
Það er einkum ætlað til að æfa börn í að nota algengar íslenskar sagnir í nútíð og þátíð. Í spilinu eru samtals 144 spil (288 myndapör) sem skiptast í sex flokka eftir beygingum sagnorðanna. Á hverju spili er mynd og setning með sagnorði í nútíð eða þátíð. Sagnorðaspilið býður upp á ýmsa möguleika bæði í einstaklingskennslu og í litlum hópum. Hugmyndir um notkun fylgja spilinu.
- Námsgreinar: Íslenska Íslenska sem annað tungumál
- Vörunúmer: 6064
- Aldursstig: Yngsta stig, Miðstig, Unglingastig
- Útgáfuár: 2007
- Höfundur: Hólmfríður Árnadóttir
- Myndefni: Böðvar Leós



